|
14. maí 2012
» Nánar
Óli kominn í gírinn.
Um helgina 11-13 mai var Sleipnis mótið á Selfossi. Óli fór þangað með Mósart, Lipurtá og Nýey öll frá Feti og tók þátt í fimmgangi, fjórgangi og Tölti. Hann komst í B-úrslit í fjórgangi á Lipurtá og var þetta hennar annað mót, hún er 6.v. og er að stíga sín fyrstu skref á þessari braut. upp úr B-úrslitum reið hann og endaði í 6. sæti með 6.50 Nýey fór beint í A-úrslit með 7.23 og var Óli einn af fjórum og það eini karlmaðurinn sem fékk plús hjá dómurum fyrir prúðmannlega reimennsku. Tveir efstu hestar mættu svo ekki í úrslit og kom því Óli efstur inn með Nýey og vann A-úrslitin með 7.72 flottur árangur.
20. apríl 2012
» Nánar
Dætur Freymóðs frá Feti.Freymóður frá Feti undan Roða frá Múla og Frá frá Feti er með 8.48 fyrir hæfileika og 8.09 fyrir sköpulag. 8.33 í aðaleinkunn. Hann hefur einstaklega gott geðslag og svo er hann botnlaust rúmur á gangi. En einhverra hluta vegna hefur ekki verið mikil aðsókn í hestinn. Núna eru nokkur tryppi hérna í tamningu á 4.v. ( eins og kom fram fyrr í vetur ) þar eru virkilega spennandi tryppi á ferð og er straks hægt að segja að geðslagið er þar til fyrirmyndar og einnig stór og myndarleg. Einmitt það sem flestir óska sér. Af hæfileikum að segja þá er á þessu stigi máls lofandi gangur og vilji þannig að hvaða hesteigandi sem er yrði stoltur af. Hérna fylgja með myndir af tveimur hryssum undan Freymóði. Sú rauða Gunnhildur er undan hryssunni Fantasíu frá Feti og sú brúna Unnur er undan hryssunni Gústu frá Feti.
09. apríl 2012
» Nánar
Sigur hjá Óla.
Þá eru vetrarmótunum lokið, enda stutt í sumardaginn fyrsta. Síðasta mótinu var frestað um viku og urðu því Toni og Emil af sínum sénsum þar sem þeir voru farnir úr landi. En Óli og Viðja héldu uppi heiðri Fets. Óli fór á gæðingshryssunni Nýey og vann og varð einnig efstur að stigum fyrir öll þrjú mótin og Guðbjörg Viðja endaði í fjórða sæti en var önnur að stigum eftir mótin þrjú. Þau voru því sátt með sitt enda ekki ástæða til annars. Guðbjörg Viðja hélt svo skemmti mót hérna á Feti fyrir nemendur Laugalandsskóla frá 5-10bekk laugardaginn fyrir páska. Þar mættu fjórir krakkar og skemmtu sér konunglega og ekki síður foreldrarnir. Sett var upp þrautabraut sem var fólgin í að opna hlið og ríða í gegn, sviga milli keila, taka hlut af tunnu og setja á aðra, kasta bolta í hjólbörur, snúa einn hring í hnakknum án þess að nota hendur,ríða yfir hindrun, taka hnakkinn af og ríða berbak í mark. Þetta leistu allir vel og var mikil keppni í gangi. Síðan urðu nokkrir foreldrar að sína hvað í þeim bjó og ekki var að sjá að þeir skemmtu sér síður en krakkarnir.
23. mars 2012
» Nánar
Stóðhestar á Feti í sumar.
Þá fer nú að líða að vori og kominn tími til að leiða hugann að því undir hvaða hesta hryssurnar fara. Hérna á Feti verða fáir en góðir stórgæðingar í boði, þetta eru þeir Vilmundur frá Feti, Kiljan frá Steinnesi, Hrókur frá Efstadal og Freymóður frá Feti. Vilmundur verður hérna á Feti öll gangmálin og kostar 150.000 með/vsk, sónar og hagagjaldi. Freymóður verður einnig hérna á Feti öll gangmálin og verðið er 65.000 með vsk. sónar og hagagjaldi. Hrókur frá Efstadal kemur eftir landsmót, verð 150.000 m.vsk.sónar og hagagjaldi Kiljan frá Steinnesi verður á Hvoli í Ölfusi á húsmáli og hérna á Feti eftir landsmót og verðið með vsk.sónar og hagagjladi er 170.000 Anton tekur við pöntunum undir þessa hesta í síma 8989644 eða tölvupóst toni@fet.is og fet@fet.is Vilmundur á vordegi 2011. Freymóður á sínu mjúka góða tölti. Kiljan í góðum gír á fjórðungsmóti vesturlands. Hrókur, ungur og spennandi.
14. mars 2012
» Nánar
Námskeið.
Um helgina sem leið, 10-11 mars var námskeið hérna á Feti með Eyjólfi Ísólfssyni þar var mættur góður hópur fólks með áhuga á að bæta sig og hestinn við þjálfun. Það var mikið spáð og spegúlerað og ekki var að heyra en að allir hafi verið sáttir og glaðir eftir helgina, óþreyjufullir að komast heim og halda áfram með það sem verið var að læra. Það var náttúrulega í fyrirrúmi að hafa hestinn sáttann, mjúkann og spennulausann. Sá partur af þjálfuninni verður aldrei of oft kveðinn. Hérna fylgja myndir af þremur af átta nemendunum sem voru á námskeiðinu.
01. mars 2012
» Nánar
Hryssa til sölu / mare for sale.Hryssan Gróa frá Feti er til sölu is2006286913, hún er undan Þristi frá Feti og Gyðu frá Feti (kraflarsdóttur) Gróa var sýnd 4v. og fékk í aðaleink. 7.52 Þar af 8.06 fyrir sköpulag og 7.16 fyrir kosti. Hún er með 110 í blup. síðan hefur hún átt eitt folald og er núna komin í þjálfun. Gróa er töltari með brokki.
Á meðfylgjandi myndum er hún með engar þyngingar og járnuð á áttur hringinn.
Gróa from Fet is for sale is2006286913. Her father is Þristur from Fet and the mother is Gyða from Fet . She is a good tölt mare with trab. At this photos she has no boots on her shoes are 8mm.
20. febrúar 2012
» Nánar
Straumur frá Feti.Snjórinn er til margra hluta nytsamlegur, og eitt af því er að taka myndir úti þegar snjór og byrta leika saman. Hérna eru nokkrar myndir af Straumi frá Feti, hann er á 4. vetur undan Þristi frá Feti og Smáey frá Feti. Óli hefur verið að þjálfa hann undanfarið og gengur það glatt. Klárinn er lofthár og framfallegur, með gott geðslag. Brokkið hans er svifmikið og fallegt og svo er hann að byrja að styrkjast á tölti, spennandi hestur á ferðinni.
07. febrúar 2012
» Nánar
Góður árangur á vetrarmóti.Vetrarmót Geysis í tölti var haldið um helgina og fóru 4 hross úr hesthúsinu á Feti ásamt knöpum á mótið. Árangurinn var frábær og komu 2 gull eitt sifur. Toni og Nýey unnu opnaflokkinn, Óli og Lipurtá urðu önnur í opnum flokk. Guðbjörg Viðja og Aþena unnu barnaflokkinn. Emil og Sindri lentu í 6. sæti í ungmennum. Frábær byrjun á vetrinum. Nýey er undan Orra og Smáey Lipurtá er undan keili og Litbrá, sammæðra gæðinghryssunni Kolbrá sem var sýnd í flottar tölur í Þýskalandi af eigandanum Hönnu Pölsebauer Aþena er alsystir Maríu frá Feti undan Orra og Ösp. Sindri er frá Saltvík undan Kraflari frá Miðsitju.
06. febrúar 2012
» Nánar
Vetrarríki.
Horfir á heyjaforðann Það hefur verið annsi mikið vetrarríki undanfarið hérna á suðurlandinu og eru þá nokkrir sem kannast orðið við sig. Það er nokkur munur frá því sem verið hefur undanfarin ár þegar snjórinn var í einn til tvo sólarhringa í senn og þess á milli auð jörð. Nú bætist allt í einu við töluvert meira eftirlit vegna skurðanna sem hafa fyllst af snjó og svo var allt að því jarðbann og jókst því útigjöfin til muna svo nokkuð hefur gengið á heyforðann, eins og segir í kvæðinu. En það má ekki bara bölva og ragna þessari fallegu vetrartíð því fegurðin verður svo mikil og allt hreint og fallegt og allar skepnur njóta sín í þessari tilbreytingu frá roki og rigningu. Horft heim að gamla Feti. Ró yfir öllu. Smádýrin njóta sýn líka í snjónum, Bassi (hvolpurinn) og kötturinn Sissó að leika sér.
16. janúar 2012
» Nánar
Kiljan á Feti í sumar.
Stóðhesturinn Kiljan frá Steinnesi verður á Feti eftir landsmót í sumar. Hann var hérna sumarið 2010 og eru því til nokkur folöld frá síðasta sumri undan honum, lofthá og falleg. Mörg þeirra hafa strax miklar herðar og eru ganggóð. Kiljan fékk 8,78 í aðaleinkunn á LM síðasta sumar. Þar af 9.07 fyrir hæfileika og 8.35 fyrir sköpulag. nokkrar 9.0 þ.a.m. bak og lend og hófar, brokk, tölt og hægt-stökk. Þrjár 9.5 eru þarna; skeið, vilji og geð, og fegurð í reið. Ekki amalegt það.
Við erum himinsæl að fá þennan stólpagæðing og höfðingja hingað til okkar aftur.
09. janúar 2012
» Nánar
Nýtt ár, nýjar áherslur.
Þá er nýtt ár gengið í garð og nýjar áherslur með. Það eru komin á hús eldri hross sem halda áfram og fara aftur í sýningu og eða keppni og síðan eru þau ungu sem voru frumtamin í haust einnig komin inn þ.e. þau sem við teljum að borgi sig að stefna með á sýningu í vor. Alls eru þetta um 46 hross. Við leggjum áherslu á að þjálfa hrossin vel og mæta með þau eins vel undirbúin í vor og okkur er unnt. Vetur konungur ætlar að leggja orð í belg og minna á sig og leggur til súper færi í leiðinni. Vonandi færir þetta nýja ár okkur nýjar áherslur í hestamennskunni og betra viðhorf gagnvart þessari stórkostlegu skepnu "hestinum"sem við höfum valið okkur að vinna með. Við óskum öllum hestamönnum velfarnaðar á þessu ári og vonum að jákvæðni og gott hugarfar verði okkur samferða út árið.
18. desember 2011
» Nánar
Kæru hestamenn og vinir.GLEÐILEG JÓL GOTT OG FARSÆLT KOMANDI ÁR, ÞÖKKUM ÁRIÐ SEM ER AÐ LÍÐA. MARRY CHRISTMASH AND HAPPY NEW YEAR.
23. nóvember 2011
» Nánar
FrumtamningaprófÍ gær 22 nov. var skemmtilegur dagur þar sem tveir ungir menn þreyttu próf í frumtamningum hérna hjá okkur. Þetta kom þannig til að í fyrra voru þeir hérna á Feti bæði við for-og frumtamningar og fengu þá töluverða tilsögn og mikla reynslu. Það var svo eins í haust og var þá straks tekin ákvörðun um að þeir hefðu sín trippi frá upphafi og þeir myndu svo útskrifast héðan sem tamningamenn ef allt gengi upp. Þetta varð svo úr í gær að Toni, Eyjólfur Ísólfsson og Þorvaldur Árni tóku út prófið. Þeir tömdu 10 trippi hvor og sýndu ýmsa vinnu og þrjú trippi í reið. Munnlegt próf sem fór fram á þeirra tungumáli. Í lokinn var í boði að vera með frístæl og toppaði það prófið. Tamningartíminn var 10 vikur. Þeir fengu svo í hendurnar diploma/prófskírteini sem segir að þeir hafi tekið þetta próf og á bak við það liggi lágmark 40 fortamningatrippi og 20 frumtamningatrippi, undirskrifað af öllum dómurunum. Myndirnar sem fylgja með eru teknar í prófinu. Eyjólfur að taka út heilbrygði. Þorvaldur Árni prófar trippi. Dómarar og nemendur (vantar Þorvald)
10. nóvember 2011
» Nánar
Freymóður frá Feti.Freymóður frá Feti er mikill karakter. Hann er undan Roða frá Múla og Frá frá Feti. Hann hefur fengið nokkrar hryssur til sín undanfarin ár og á skráð 33 afkvæmi. Núna eru 11 hross undan honum í tamningu héðan frá Feti árgangur 2008. Þetta eru frekar spennandi tryppi, opin í gang, mörg fara um á tölti eða renna inn í tölt, stórstíg flest, með prýðilegan fótaburð og sum ríflega það. Geðslagið til fyrirmyndar og stærðin í nokkuð rúmu meðallagi með myndarskap. Freymóður er með 118 í blupi, 8.48 fyrir hæfileika. 9.0 fyrir tölt og 9.0 fyrir vilja og geðslag. Vonandi er þarna á ferð upprennandi reiðhestafaðir, sem hentar breiðum hópi hestamanna. Til gamans má geta að á folaldasýningu nú í haust hjá Hrossaræktarfélagi Hrunamanna vann í hryssuflokk Freyja frá Þórarinsstöðum undan Freymóði frá Feti. Hérna fyrir neðan eru myndir af Freymóði og nokkrum af hans afkvæmum sem eru inni í tamningu. Gunnhildur er undan Fantasíu og er hún hvað mest spennandi eins og staðan er í dag. Míla er undan Drottningu frá Meðalfelli og er léttstíg mjúkgeng og með fallegann fótaburð. Unnur er undan Gústu frá Feti fer aðallega um á brokki en rúllar þó í tölt niðurímót, fallegur fótaburður og stórstíg. Tinni er undan Svörtufjöður frá Feti, hann er yfirvegaður og fer mest á brokki en rúllar í tölt þegar þannig liggur við. Tvær hryssur til viðbótar eru inni. Geldingarnir sem eru komnir út hafa sömu sögu að segja, stórir frekar fallegir, eru töltgengir og brokka með. Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri og fletta þannig í gegnum þær.
01. nóvember 2011
» Nánar
Fet tilnefnt í 15 sinn.Þá er búið að tilnefna þau Hrossaræktarbú sem þykja hafa staðið sig hvað best á síðasta ári. Þar á meðal var Fet og er það að við höldum í 15 sinn sem það fær tilnefninguna. Svona til gamans þá er hérna smá fróðleikur. Í sumar sem leið fór fjöldi 1v. hrossa frá Feti yfir 100 hrossa markið. Á árinu voru sýnd í kynbótadómi 30 hross frá búinu og var meðaleinkunn 8,02, meðalaldur var um 6,3. Við leggjum ekki áherslu á að sýna tryppin 4v. nema þau eigi því auðveldara með að sýna það sem í þeim býr og hafi styrk til að fylgja því eftir, annars eru 4v.tryppin bara vel undirbúin fyrir næsta ár. Rökin um styttingu ættliðabilsins halda ekki vatni því allflestar hryssur sem tamdar og sýndar eru 4v. halda áfram í tamningu en fara ekki í folaldseign. Kannski væri réttast að hætta sýningum á 4v. hryssum?
13. október 2011
» Nánar
Farið út á tryppunum.Lagt af stað á stóðhest-efnunum. Í síðustu viku var farið út á tryppunum í fyrsta skipti. Í þetta sinn reið Toni á undan frá húsi á tömdum hesti en hinir ungu eltu. Þetta gekk eins og í skáldsögu, öll tryppin voru vel undirbúin og tilbúin í þessa ferð. Ekki er hægt að segja að þetta hafi allt verið lambþægt alltaf eins og kom fram hérna í fréttinni á undan en það hafa verið smá uppákomur svona til að hafa eitthvað með kaffinu:) Til að útskýra það nánar þá þarf sá sem dettur af að koma með köku fyrir fallið. Geldingarnir hafa flestir farið út aftur, orðnir reiðfærir og þjálir. Þá er bara að leggja áherslu á hryssur og stóðhesta. Enn ríðum við bara með tengt í bandmúlinn en farin að setja tengi í hringamélin, við leggjum mikla áherslu á að hrossin séu þjál og sátt við mélin. Reiðinn var líka settur á á mánudaginn og ekki var nema eitt hross sem tók það eitthvað nærri sér hin urðu ekki vör við hann, enda búið að lyfta tagli á hverjum degi frá byrjun. Járningar hafa farið vel fram (bara búið að framan) það hefur líka verið undirbúið eins þ.e. lyft fótum í hvert skipti sem tryppið er meðhöndlað og munar það miklu fyrir járningamennina.
28. september 2011
» Nánar
Haustið og frumtamningarnarÞá er haustið gengið í garð og tími frumtamninga runninn upp. Fortamningum, ormalyfsgjöfum, fax og tagl klippingum lokið. Við erum búin að taka inn 53 tryppi og aðeins komin á veg með að temja. Þetta er hinn fríðasti hópur og mikið munar um að hafa þau fortamin eins og við höfum gert undanfarin 3 ár. Öll voru þau þannig eftir fortamninguna að hægt var að mýla og teyma og því erum við komin á bak þeim núna og ekki er hægt að tala um hrekki né nein önnur leiðindi. Við tamningarnar eru öflugir ungir menn, þeir Ólafur Andri og Emil sem var hérna í fyrra (frá Danmörk) Terral Hill hefur komið hérna í heimsókn (hann var hérna að læra tamningar í fyrra), svo eru Anton og Inga enn ótrúlega liðtæk við tamningarnar. Þannig að allir eru með vinnubrögðin á hreinu og því gengur þetta fljótar fyrir sig að taka rennsli á þessi 53. Ekki er hægt að segja annað en þetta verður spennandi vetur því ekki vantar framtíðargæðingana í þennan flokk frekar en aðra, má þar til gamans nefna nokkur undan Freymóð frá Feti´, þau eru stór og falleg og stórstíg mjög geðgóð, undan Blæ frá Torfunesi stóðhestefni og geldhross, svo eru nokkur Vilmundarafkvæmi ásamt fleirum. Veturinn verður svo að leiða það í ljós hvernig vinnst úr þessum gæðingsefnum.
Emil að fara á bak í fyrsta skipti Stakk u: þristi og Ísafold, Toni heldur í. Haustverkin: klippa hófa, klippa tagl og fax og gefa ormalyf.
02. september 2011
» Nánar
Horses for sale, Hestar til söluTil sölu vel þjálfaðir geldingar. Geldings for sale, easy to ride. More information and videos are in hest.is Vídeo og frekari upplýsingar eru á heimasíðunni hest.is og einnig veitum við upplýsingar í síma:8639644
Loki er 5v. undan Vilmundi og Ísafold frá Feti. Hann hefur 5 gangtegundir og er þægur. Orri er 5v. undan Orra frá Þúfu og Drífu frá Feti hann er góður reiðhestur með léttan vilja. Sindri frá saltvík er 11v. hann er frábær reiðhestur og hentar líka í keppni. Viljugur og er gjarnan valinn til skemmtireiðtúra. Vani frá Feti er 5v. undan Árna Geir og Vonin frá Feti frábær og traustur fjölskylduhestur.
17. ágúst 2011
» Nánar
Seinnihluti sumars.T.v. Vofa með Roðasoninn hann Svip. T.h folöld komin í hausthagann með mæðrum sínum. Það er langt liðið á sumarið og því búið að koma ýmsu í verk frá síðustu frétt. Hekla katharína landaði einum heimsmeistaratitli eftir að hún hætti hérna, Til hamingju með það Hekla. Sonja og Steffi eru báðar farnar til annara verka. Landsmótið fór á þann veg hjá okkur að Vilmundur tók við 1.verðlaunum sem kynbótahestur og var með fínan hóp afkvæma með sér, þar má nefna; Frakk frá Langholti, Keflavík frá Feti, Þorbjörn frá Feti, Mósart frá Feti og Kolka frá Efri-Rauðalæk. Nýey, Minný, Opna og Kreppa fóru og sýndu sig á kynbótabrautinni og fór það ekki allt eins og maður hefði vilja en þó viðunandi, en allar nema Opna fóru undir hesta. Hérna á búinu hafa verið 4 stóðhestar með hryssur í sumar. Það eru þeir Vilmundur frá Feti og Kvistur frá Skagaströnd, Freymóður hefur verið með nokkrar hryssur og Hruni frá Breiðumörk hefur haft hér aðsetur með sínar spúsur. Um 62 folöld fæddust hérna í sumar, skiptist það nokkuð jafnt kynja hlutfallið. Þarna eru mörg gullfalleg folöld undan fjölda hesta. Kiljan var hérna hjá okkur í fyrra og fengum við því nokkur undan honum og eru þau háfætt og falleg. Roði frá Múla var einnig hérna og komu fín folöld undan honum og þess má til gamans geta að Vofa (móðir Jónínu) hefur bara vilja hann undanfarið og eignaðist hún sitt síðasta folald rauðblesóttan hest gullfallegann. Nú svo hefur bæst í hóp starfsmanna mikill fengur ,Ólafur Andri Guðmundsson hann kom til starfa fljótlega eftir landsmót. Óli hefur lokið öllum þremur árunum á Hólum. Viljum við bjóða hann velkominn til okkar. Bylgja Gauksdóttir sambýliskona Óla er með sína aðstöðu á Efri-Rauðalæk og verður sjálfstætt starfandi í vetur. Svo má ekki gleyma erlendu verknemunum, fjórar sænskar stelpur eru hjá okkur í 6 vikur tvær að klára og tvær ný komnar, og ein eldri áhugamanneskja frá sviss. Svo það er nóg um að vera á búinu eins og alltaf.
15. júní 2011
» Nánar
Hekla Katharina búin með verknám.Í lok mai lauk Hekla Katharína verknámi sínu frá Hólaskóla. Eins og hennar var von og vísa tók hún hörku próf á þjálfunarhestana og endaði því sem hæsti nemandinn þetta árið frá Hólum á öðru ári. Hún byrjaði með 5 hross og þjálfaði þau seinnipart annarinnar og valdi sér svo þrjú af þeim til prófs. Hrossin sem hún valdi voru Minný frá Feti 6v. undan Frá frá Feti og Árna Geir frá Feti. Mósart frá Feti 5v. undan snældu frá Sigríðarstöðum og Vilmundi frá Feti. Nafni frá Feti 4v. undan Ösp frá Háholti og Vilmundi. Öll þrjú hrossin eru alhliða en hún sýndi eingöngu skeið á Mósart og Minný. Svo hefur kellan náð þeim frábæra árangri að komast í landsliðið sem ungmenni, þannig að hún og Gautrekur eru á leiðinni til Austurríkis Til hamingju Hekla og takk fyrir frábæran vetur.
09. júní 2011
» Nánar
100 hross frá Feti með 8,0 og yfir.Sá gleðilegi atburður gerðist í dag að 100-asta hrosssið frá FETI fór í 1.v. Það var 6v. hryssan hún Minný undan tveim Fets hrossum þeim Frá frá Feti og Árna Geir frá Feti. Minný hlaut 8.15 í aðaleinkunn og sömu einkunn fyrir kosti og byggingu. Einnig fékk hún farmiða á landsmót ásamt þremur öðrum hryssum, þeim Kreppu, Opnu og Nýey. Minný mun fara í ræktun hérna á Feti seinnipartinn í sumar.
06. júní 2011
» Nánar
Kynbótasýningar.
Þá eru kynbótasýningarnar hjá okkur langt komnar og fylgja hérna nokkrar myndir af þeim hrossum sem hafa verið sýnd. Til gamans má geta að Vilmundur er kominn með þann fjölda afkvæma í dóm sem þarf til að hann fái 1.verðlaun. Brynja frá Grindavík með 7.84 í aðaleinkun. 8,0 fyrir skeið. Brynja er undan Vilmundi. Brynja fékk 8,5 vilji og geð og 8,0 fegurð í reið. Ekki var Minný frá Feti eins heppin með veðrið og því fór eitthvað lítið fyrir hennar breytingum á yfirliti. 8,15 fyrir byggingu og 7,8 í aðaleink. Gjöf frá Feti undan Árna Geir og Gústu. Fegurð í reið 8,0 Gjöf á brokki með geisilega miklu svifi og stórum skrefum tók brautina í helmingi færri skrefum en hinar. 8,0 Kreppa frá Feti 5v. 9,0 fyrir háls herðar og bóga. 8,5 fyrir Tölt,brokk og fegurð í reið. Nýey 6v. 8.50 sköpulag og 8.14 hæfileikar. 9,0 fyrir tölt og fegurð í reið. Eyvör frá Feti 5v. 8.15 fyrir byggingu. 8.5 tölt, brokk, vilji og geð og fegurð í reið.
12. maí 2011
» Nánar
Kolbrá frá Feti í flottann dóm.Þá er fyrsta hrossið frá Feti búið að fara í dóm á þessu ári og er það hryssan Kolbrá undan Þristi frá Feti og Litbrá frá Feti. Kolbrá er í eigu Johönnu Pölzebauer í Þýskalandi og var sýnd af eiganda sýnum nú á dögunum. Kolbrá er klárhryssa og fékk fyrir byggingu 8,40 og hæfileika 8,35 aðaleinkun 8,37. þar af eru sex 9 og ein 9,5 fyrir hæfileika og 9,0 fyrir háls herðar og bóga. Við á Feti erum að sjálfsögðu alveg í skýjunum með þetta og óskum þeim Jóhönnu og Hauki innilega til hamingju.
03. maí 2011
» Nánar
Sól og sælaMeð sumrinu og sólinni kemur sælan og það ekki bara hjá okkur mannfólkinu, því fjórfætlingarnir njóta sín líka þegar yndislegheitin í veðrinu hellist yfir okkur. Nú fer að styttast í kynbótasýningar og þá þarf allt að vera klárt, Tölt-tékk, brokk-tékk, skeið-tékk o.s.frv. Eins og þjálfun vetrarins hefur lagt grunninn að. Þá er að leggja þetta allt í hendur dómaranna og sitt sýnist hverjum með það, en það sem er svo skemmtilegt við þetta allt er að við getum aldrei verið viss um hver er besti kynbótagripurinn þegar öllu er á botninn hvolft fyrr en viðkomandi hefur sannað sig sem slíkur. Hérna með fréttinni eru nokkrar myndir sem voru teknar í góða veðrinu í gær. Toni á Gjöf frá Feti og Sonja á Þerney frá Feti Hekla á Sonju frá Syðra-Holti í eigu Ingu og Tona, tryppi sem hún var með í frumtamningu.
18. apríl 2011
» Nánar
Fyrsta folaldið í árÞað náglast óðum sumardaginn fyrsta og því er ekki óeðlilegt að fyrsta folaldið hafi litið dagsins ljós. Þetta er jarpur hestur undan Bringu frá Feti og Gaum frá Auðsholtshjáleigu. Ekki var veðrið að skarta sýnu fegursta, rigning, rok og suddi var þennan dag og voru því mæðginin tekinn heim að bragga.
09. apríl 2011
» Nánar
Vilmundur frá FetiVilmundur er viljans faðir Vekurðin í hæstu hæðum. Knapar eru kampakátir sem kunnir eru klársins gæðum. Eðalblóð um æðar rennur aðalsmerki mikil geta. Fjöraflið í fáknum brennur flestir kunna vel að meta.
Afkomendur afar styrkir afburða til allra verka. Mikilhæfir á mótum virkir mjög þar prýðir lundin sterka. Fegurðin í formi gæða fjöldinn kann þau vel að meta. Metorðin til hæstu hæða meðalveginn sjaldan feta.
Hamingju í hjarta búa hún er öllum mjög til bóta. Að viljanum þarf vel að hlúa vilji maður vel hans njóta. Vilmundur í vilja styrkur vekur ætíð gleði strauma. Vinnusamur mikilvirkur virkjar marga æsku drauma. Þennan fallega kveðskap um Vilmund fengum við afhent við morgunkaffið einn laugardagsmorgunn frá stórsöngvaranum Guðmundi Kr. Sigurðssyni. Guðmundur hefur fært okkur fleiri stórgóðar vísur og kvæði um ýmsa hesta og menn. Takk Guðmundur.
08. apríl 2011
» Nánar
FEIF nemar.Um síðustu helgi var námskeið á Skeiðvöllum á vegum FEIF, Félags Hrossabænda og Skeiðvallar. Þetta var kynbóta-knapa námskeið fyrir yngri kynslóðina sem er að hefja sinn feril sem sýnendur. Þarna komu ungmenni frá allmörgum löndum (hægt að sjá allt um það á skeidvellir.is). En við áttum þarna tvo fulltrúa þ.e.a.s. Sonja Noaq frá Swiss sem er hérna hjá okkur á Feti og Andrea Balz einnig frá Swiss, en hún var hjá okkur síðasta vetur. Þær voru himinsælar með þetta námskeið og tóku með sér hesta héðan frá Feti. Freistingu, Þerney og svo var geldingurinn Sindri lánaður.
04. apríl 2011
» Nánar
Már vann.Már frá Feti og Viðar Ingólfsson sigruðu gæðingaskeiðið í Meistaradeildinni í gær sunnudag 3.april. Með 8,08 Það verður spennandi að fylgjast með þeim í framtíðinni. Til gamans má geta að hérna á Feti eru nokkur trippi til undan Má og eru þau gullfalleg eins og hesturinn og lofa góðu með fallegum hreyfingum.
23. mars 2011
» Nánar
Ný hross komin í sölu.komin eru nokkur ný hross í söluhrossflipann hér fyrir ofan. Horses for sale under söluhross.
22. mars 2011
» Nánar
Stóðhestar á Feti í sumar
Stóðhestarnir Vilmundur frá Feti og Kvistur frá Skagaströnd munu vera á Feti í sumar. Vilmundur verður í allt sumar og er verð 160.000 kr. með öllu. Kvistur frá Skagaströnd verður frá 20. júní og fram úr og kostar 155.000 með öllu. Myndin er af Kvisti
18. mars 2011
» Nánar
Frumtamningapróf verknema
Þá er frumtamningaprófi lokið. Hekla Katharina stóð sig með sóma og eins og sjá má á myndunum ákvað sólin að spila undir. Öll tryppin sem hún var með voru óskaplega skemmtileg, þau buðu öll tölt og kom það af sjálfu sér þegar samspil ábendinga var vel á veg komið. Hérna er Hekla á Sonju í prófinu.
Hekla og Lilja að fara út íreiðtúr. . Teyming á hesti.
14. mars 2011
» Nánar
Góður árangur á ísmótiÍsmót Suðurlands var haldið á laugardaginn var niður í Þykkvabæ og fór Toni með 3 hesta í kerru, þau Nýey frá Feti , Vilmund frá Feti og Draupni frá Dalvík sem er ungur stóðhestur á uppleið. Árangurinn lét ekki á sér standa, Vilmundur var að keppa í fyrsta sinn en eins og kannski margir vita hefur hesturinn eingöngu komið fram í kynbótadómi. Hann varð efstur eftir forkeppni í A flokk með 8,63 og var í feiknastuði, en dró sig út úr úrslitum. Nýey var önnur eftir forkeppnina í Tölti með 7,5 ásamt 3 öðrum , þ.e. fyrstu 4 sætin voru öll með 7,5, og endaði hun þriðja í úrslitum með sömu einkun. Hér með þessari frétt fylgja nokkrar myndir af þessum feiknagóðu Orra afkvæmum. Vilmundur á tölti
Vilmundur, brokk og skeið Nýey Nýey
08. mars 2011
» Nánar
Freymóður frá FetiFreymóður frá Feti er í þjálfun hjá Ísólfi Þórissyni frá Lækjarmóti, hann hefur þegar komið fram á einu móti, Skagfirsku mótaröðinni þar sem hann vann töltið og er hann að fara að keppa í tölti í KS Deildinni á Sauðárkrók. Hann er í feiknagóðu formi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
25. febrúar 2011
» Nánar
Frumtamningar Verknámsnemans ganga mjög vel.
Frumtamningarnar eru rúmlega hálfnaðar og allt gengur eftir áætlun, tryppin öll orðin vel reiðfær og farið að tengja beint í mél. Þetta eru skemmtileg tryppi sem sýna mikla ganghæfileika og fallegann fótaburð. Hekla þurfti þó að skipta út einu tryppi strax í upphafi og í stað Gullu kom Fjörgyn frá Syðra Holti undan Fjörni frá Hólum.
Til gamans má geta þess að Heklu Katharinu hefur gengið mjög vel í Meistaradeild Vís og hefur hún komist í úrslit í þeim 3 greinum sem búnar eru nú þegar þetta er skrifað.
Nafni undan Vilmundi frá Feti og Ösp frá Háholti Anna undan Vofu f. Enghlíð og Roða f. Múla
Nafni
13. janúar 2011
» Nánar
Nýr verknámsnemi á Feti
Við bjóðum Heklu Katharinu Kristinsdóttur velkomna til verknáms að Feti. Hún var valin efnilegasti knapi ársins á uppskeruhátíð hestamanna og er okkur mikill fengur að hafa fengið hana til okkar. Hún er með fimm hross hjá okkur : Lilja, alsystir Auðar frá Hofi Sonja undann Öld og Draumi Anna alsystir Jónínu frá Feti Nafni undan Ösp og Vilmundi Gulla undan Árna Geir og Gullrönd
Á neðri myndinni er hún á Nafna.
22. desember 2010
» Nánar
Gleðilegt árSendum öllum þeim sem starfað hafa hjá okkur, viðskiptavinum og öðru hestafólki, okkar bestu óskir um Gleðilegt ár. Með þökk fyrir liðið ár. Karl og Jóhanna Toni og Inga Feti
14. desember 2010
» Nánar
Eindæma veðurblíða í desemberVeðrið hefur verið alveg afskaplega fallegt , kalt en kyrrt.
Tekið yfir gamla Fet.
Merkúr frá Feti og Hómer frá Feti báðir undan Roða frá Múla.
30. nóvember 2010
» Nánar
Fortamning folaldaVegna hestaflensunnar eru folöldin öll komin undan mæðrum sínum að undanskyldum 4 yngstu folöldunum. Góð aðstaða er til að hýsa folöldin í stórri skemmu þar sem þau ganga við opið og virðast þau dafna vel. því var tekið á það ráð að fortemja þau aðeins, sem alla jafna er gert í apríl, áður en frumtamningarmennirnir færu heim. Hér er Sonja með Andreu undan Perlu frá Hömluholtum og Vilmundi frá Feti.
Emil kynnir folaldið fyrir múlnum í fyrsta skipti.
Fyrst eru folöldin látin fara í kringum manninn í stíunni. Hér er Jenný með snotrann Orrason undan Kengálu frá Brattavöllum. Terral að kenna folaldi að teymast en fyrst og fremst er leitað eftir því að folaldið losi um afturhlutann og elti manninn. Einn af gullmolunum í hópnum, Myrra undan Hróðri og Ösp
19. nóvember 2010
» Nánar
Frumtamningum lokiðHefðbundnum frumtamningum er lokið en Sonja, Terral og Emil fóru í það að kynna hrossin fyrir hinum ýmsu hlutum og hljóðum og tala myndirnar sínu máli. Endilega fylgist með , það eiga eftir að týnst inn fleiri hross á næstu vikum. Hægt er að hafa samband við Tona í síma 8639644 eða Ingu í síma 8989644 fyrir nánari upplýsingar um hrossin. We will be adding more horses for sale, on the next few weeks. Please contact Tona , 8639644 or Inga,8639644 for more information.
28. október 2010
» Nánar
Söluhross týnast inn á síðuna.
Endilega kíkið á hrossinn sem komin eru í sölu undir flipanum söluhross hér fyrir ofan. New horses for sale, look under "söluhross" on our webpage.
25. október 2010
» Nánar
Tamningarnar teknar út
Gaman að sjá að bandið um hálsinn virkar, kötturinn Sissó beit í bandið og fékk hestinn til að bakka.
21. október 2010
» Nánar
Allt gengur sinn vanagangJenny og Sonja á tveimur efnilegum stóðhestum Werner og Merkúr frá Feti. Það þarf líka að kenna þeim að teymast, gott er að gera það síðasta spottann. Emil og Terral eru með Þristsyni Baldur frá Feti og Fána frá Kastalabrekku.
Heimilishundurinn Týra fylgist grannt með öllu sem gerist.
11. október 2010
» Nánar
Örfréttir með myndum.Í haust var farin mikil frægðar för í Jökulsárlón til að sjá flugelda sýningu á lóninu. kakó og flatbrauð með hangikjöti var með til að ylja kroppinn í kuldanum. Hesthúsið á Feti eftir breytingar, búið að taka niður rimlana á milli stíanna í miðjunni. Þá var smúlað, málað og sótthreinsað. Góð breyting.
Gamla hesthúsið á Feti, búið að mála veggina og milliveggirnir voru líka málaðir, byrti heilmikið upp í húsinu.
Þessir fýrar sjá um allt viðhald og íslensku kennslu á staðnum.
11. október 2010
» Nánar
Frumtamningar á fullu.Fortamningar eru yfirstaðnar og gekk það glatt, allir árgangar voru á því stigi að hægt var að setja á múl og vinna með í kringum sig. Síðan var rétt farið yfir áhersluatriðin s.s. að taka upp fætur og senda út á hring í kringum sig þ.e. hringteyma og svo teyma á eftir. Frumtamningar hópurinn er kominn nokkuð á veg, í dag var farið í fyrsta sinn út á nokkrum tryppum og gekk það eins og í sögu. Einn fer á undan á tömdu hrossi og allir teyma frá góðan spöl og svo er farið á bak og riðið heim, tryppin eru róleg og spennulaus þar sem búið er að að kenna þeim grunninn vel og sveigjustoppið en það verður að vera öruggt. Svo hafa tryppin vanist því að vera 3-4 saman á eftir reiðhesti inni og er því breytingin lítil þegar farið er út. Enn er bara riðið á bandmúl en með beisli uppí hrossinu. Það er gaman að geta notað veðurblíðuna sem sér sennilega fyrir endann á, til að fara á tryppunum út í fyrsta skipti.
Terral með veturgamla hryssu í fortamningu. Jenny með nöfnu sína Jenný undan Aroni Orka 1v. undan Sædyn og Papey Sonja að leggja við Orðu 1v. Emil rjóður í vöngum eftir vinnu við veturgamalt tryppi, er að líta á ættir hrossanna.
06. september 2010
» Nánar
Haustverk og nýtt fólk.Þá er sumri lokið og allt starfsfólk fyrir utan þá fastráðnu farnir til annara starfa og óskum við þeim góðs gengis. En alltaf kemur maður í manns stað, að þessu sinni verður það jöfn kynjaskipting frá fjórum löndum. Tvær ungar konur;Sonja frá Sviss og Jenny frá Svíþjóð (var hjá okkur líka í fyrra haust). Þá eru það piltarnir; Emil frá Danmörku og Terral frá USA. Spennandi hópur af ungu áhugasömu fólki sem vill spreyta sig við for-og frumtamningar. Hesthúsið hefur fengið þá meðferð sem því bar, þ.e. útmokstur, þrif og sótthreinsun. Það verður byrjað á fortamningum með yngsta árganginn, veturgömlu tryppin og svo upp í þau sem á að temja í vetur. Árgangur þessa vetrar 2007 er óvenjulegur að því leiti að hryssurnar eru í færri kantinum, en til gamans má geta að tvær hryssur eru í þeim flokk sem eiga fyrir alsystur þær Jónínu frá Feti og Auði frá Hofi, þetta eru þær Anna frá Feti og Lilja frá Syðra-Holti.
12. ágúst 2010
» Nánar
Áhugasömum til upplýsinga
Nú er farið að líða að seinnuhluta sumars og hryssur tínast heim frá stóðhestum. Um 50 hryssum er haldið þetta árið og til gamans látum við hér fylgja þá hesta sem notaðir voru á hryssur frá Feti. Vilmundur frá Feti Roði frá Múla Kiljan frá Steinnesi Hróður frá Refsstöðum Héðinn frá Feti Aron frá Strandarhöfði Orri frá Þúfu Freymóður frá Feti Auður frá Lundum Dynur frá Hvammi Dugur frá Þúfu Stáli frá Kjarri Nonni frá Feti Gaumur frá Auðsholtshjáleigu Spói frá Hrólfsstaðahelli Ágústínus frá Melaleiti Ómur frá Kvistum Sædynur frá Múla
03. ágúst 2010
» Nánar
Svali frá Feti sigrar töltið
Eftir harða baráttu náði Sigurður Óli að sigra tölt keppnina á honum Svala frá Feti. Hér fylgir mynd af þeim félögunum.
02. ágúst 2010
» Nánar
Góður árangur
Stórmót suðurlands var haldið um helgina ásamt kynbótasýningu. Við óskum knöpum og eigendum innilega til hamingju með góðan árangur. Það var einnig gaman að sjá hvað hross sem ættuð eru frá Feti stóðu sig vel. Hér koma myndir af nokkrum augnablikum helgarinnar.
Eyþór frá Feti. / Eigendur eru Bragi Guðmundsson og Valgerður Þorvaldsdóttir. Hann var í A úrslitum í B flokki.
Frakki Vilmundarson. / Eigandi og knapi er Viðja Hrund Hreggviðsdóttir. Hann var efstur í flokki 6v. stóðhesta. Fjarki sonur Þrists frá Feti og Frakki Vilmundarson voru báðir í verðlaunasæti í 6v. stóðhestum.
Már frá Feti. / Eigandi og knapi er Viðar Ingólfsson. Hann var í A úrslitum í A flokki.
María frá Feti. Knapi er Sigursteinn Sumarliðason og eigendur eru; Steinn Guðjónsson, Kári Steinsson, Bára Steinsdóttir og Brynja Guðmundsdóttir.
21. júlí 2010
» Nánar
Roði frá MúlaVið viljum minna á að stórhöfinginn Roði frá Múla verður tilbúinn að sinna hryssum á seinna gangmáli hjá okkur hér á Feti. Áhugasamir hafi samband í síma 8989644 Inga eða 8639644 Toni
12. júlí 2010
» Nánar
Laus pláss undir Kiljan
Eftir næstu helgi losna nokkur pláss undir Kiljan. Áhugasamir geta hringt í Tona í síma; 863-9644.
(Hér eru Kiljan og Ingolf Nordal)
01. júlí 2010
» Nánar
Frekar seint í rassinn gripið
Jæja þá er komið að því að kynna nýja starfsfólkið á Feti, enda löngu kominn tími til. Við getum nú ekki sagt að það sé mikið jafnvægi í kynjaskiptingu hér þar sem Toni er einn af sinni sort eftir að Beggi fór í veikindafrí. Þannig að núna erum við 7 konur og 1 karl. Toni, Dana Ýr, Linda Rún, Inga María, Andrea og svo 3 nýjar, þær Saga Mellbin, Carrie Lyonds Branth og Fanny Hallberg. Jú og svo má ekki gleyma þeim Sissó og Sorrý! Það eru nýju músabanarnir á bænum. Sumarið hefur farið vel fram og allt í einu er það bara hálfnað án þess að maður hafi tekið eftir því. Það verða sjálfsagt komin jól áður en að maður getur snúið sér við. En hér koma myndir frá sumrinu og af starfsfólkinu.
Nåväl, nu är det dags att introducera ny personal på Fet. Vi kan inte säga att det är en bra balans mellan könen här där Toni är en i sitt slag efter Beggi blev sjukskriven och kommer inte tillbaka på ett bra tag. Så nu har vi 7 honor och en hane. Toni, Dana Ýr, Linda Rún, Inga Maria, Andrea, och tre nya, Saga Mellbin, Carrie Lyonds Branth och Fanny Hallberg. Ja och så får vi inte glömma det nyja möss jagarna dom Sissó och Sorrý.
Fanny Hallberg, Andrea Balz og Carrie Brandt.
Sissó! Sorrý!
16. júní 2010
» Nánar
Laus pláss undir Hróður og Kiljan.Það eru nokkur pláss laus vegna forfalla undir þá eðal stóðhesta Kiljan frá Steinnesi og Hróður frá Refsstöðum. Þeir sem hafa áhuga hringi í síma 8639644 Toni eða 8989644 Inga Þeir sem eiga pantað undir Hróður komi með hryssurnar fyrir 19. júní Hryssur sem eru að fara undir Kiljan eiga að mæta kl:14.00 á sunnudaginn 20. júní.
10. júní 2010
» Nánar
Kynbótasýningar
Kynbótasýningunum á Hellu lauk í síðustu viku með skemmtilegri yfirlitssýningu í frekar óskemmtilegu veðri. Við sýndum 9 hross í allt. 8 hryssur og 1 stóðhest. Hrossin voru flest langt frá því að vera í eins góðu formi og þau gætu verið vegna hestapestarinnar en við erum bara nokkuð sátt með okkar útkomu. Hér koma nokkrar myndir af skemmtilegum augnablikum úr sýningunum.
Edinborg frá Feti
Már frá Feti
Freisting frá Feti
Nýey frá Feti
03. júní 2010
» Nánar
Nýjustu folöldin
Dana skellti sér í göngutúr í fylfulla-hólfið með myndavélina meðferðis og skellti af nokkrum myndum af nýjustu folöldunum. Eins og sjá má nutu þau veðurblíðunnar og hvíldu sig í hitanum.
Dana tog sig en promenad i värmen idag och tog bilder av de nyja fölen.
28. maí 2010
» Nánar
Þjálfun hafin að nýju
Nú er pestin á undanhaldi og þjálfun hafin á stórum hluta hrossanna. Í blíðveðrinu á dögunum var nokkrum hrossum brugðið upp á afleggjara og ljósmyndarinn fylgdist með.
Már frá Feti
Brynja Vilmundardóttir 4.v
Gjöf frá Feti
Már frá Feti
Gjöf frá Feti
Már frá Feti
18. maí 2010
» Nánar
Folald eftir folald
Jæja nú er þetta allt að gerast! Vorboðarnir okkar eru orðin 6 talsins og er orðið spennandi á hverjum morgni að fara í fylfulla-hólfið og sjá hvort að nýtt folald hafi bæst í hópinn. Við rákum inn allar merarnar í morgunn til að taka þær sem voru kastaðar og fara með þær undir hesta. Með myndunum af nýjustu folöldunum ætla ég að láta fylgja með myndir sem Dana og Andrea tóku þegar þær gerðu sér ferð og keyrðu inn í ösku óhugnaðinn fyrir helgi.
Hérna er Filipía frá Feti með Þristsdóttir. Hér er Andvör frá Hrafnsstöðum með hryssu undan Kraft frá Efri-Þverá. ( Í eigu Tona og Ingu)
11. maí 2010
» Nánar
Hrossaræktarfélagið Fengur í heimsókn
Laugardaginn 8. mai síðast liðinn komu góðir gestir til okkar úr hestamannafélaginu Feng úr Ásahreppi í heimsókn. Þau skoðuðu sig um í hesthúsinu og síðan var öllum smalað inn í reiðhöll þar sem búið var kynnt. Teknar voru svo fram 5 hryssur og Anton sagði gróflega frá markmiðum ræktunarinnar. Eftir þetta var svo öllum boðið í kaffi og kökur og á meðan var lagt á Vilmund. Þeir félagar Toni og Vilmundur fóru útá veg og voru með smá sýningu fyrir gesti og má segja að öllu hafi verið til skartað. Og eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan þá var Vilmundur í vaðandi stuði.
11. maí 2010
» Nánar
Freymóður í góðum gír.Þar sem Reykjavíkurmeistaramótinu í hestaíþróttum var frestað var ekkert annað að gera en að ríða prógrammið á afleggjaranum heima. Freymóður var í sínum besta gír og nutu þeir Toni stundarinnar í mikilli blíðu eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan. Freymóður mun síðan fara upp í Hreppa að sinna úrvals hópi hryssna. Hér á Feti eru til nokkur tryppi undan honum og verður spennandi að byrja á þeim í haust. Þau eru stór og falleg og fara um á öllum gangi.
11. maí 2010
» Nánar
Heimsókn frá Hólum
Síðast liðinn fimmtudag fengum við skemmtilega heimsókn frá 1. árs nemum á Hólum. Þeim var boðið í súpu og brauð og svo var farið með þau í hesthúsið þar sem Anton upplýsti þau um búið. Eftir það var hann síðan með sýnikennslu á Vilmundi og að lokum var lagt á 3 Vilmundarafkvæmi og farið út. Það var gaman að fá ykkur í heimsókn og takk fyrir komuna.
Förra veckan fick vi besök från 1. års studenterna i Hólar. När de kom hit bjöd vi dom på soppa och bröd och sen gick dom ner till stallet där Anton berettade lite om Fet. Efter de hade han lite undervisning på Vilmundur og till sist tog dom 3 ungästar, barn till Vilmundur, og visade dom utomhus.
Det va väldigt trävligt besök. Tack för att ni kom hit:)
Hér er tekið yfir hópinn, vantar samt einhverja með.
Steini Bjöss og Sölvi Sig kennarar. Og Dana vinnukona á Feti.
Hér er Inga María á honum Þorbirni Vilmundarsyni.
10. maí 2010
» Nánar
Jibbí
Þá er besti tími ársins hjá stóhestunum runninn upp. Vilmundur var glaður þegar hann fékk frelsi til ástarleikja í gærmorgun. Hann tók stóran hring í hólfinu og hryssuflokkkurinn sem er mættur til hans fylgdi eftir með aðdáun þegar hann spændi um hólfið með tilþrifum. Við tókum með okkur myndavélina og náðum þessari skemmtilegu mynd af höfðingjanum og fylgdarliði hans.
10. maí 2010
» Nánar
Einum manni fátækari
Jæja nú erum við orðin einum manni fátækari hér á Feti. Fredrik Sandberg fór nú í byrjun mai í Dalland þar sem hann á að taka við búinu eftir landsmót. Hans verður sárt saknað, en við óskum honum til hamingju með nýja starfið og góðs gengis.
Nu är vi en person fattigare här på Fet. Fredrik Sandberg har fluttat till Dalland där han sen kommer att ta över efter landsmót. Vi kommer sakna honum men önskar han allt väl och grattis med nyja jobbet.
04. maí 2010
» Nánar
Fyrsta folaldið komið
Jæja þá er fyrsti alvöru vorboðinn komin. Á sunnudagskvöldið þegar kíkt var yfir stóðið sáum við alveg nýkastað brúnt kríli. Það varð mikill spenningur að vita undan hverju það var og Toni og Inga tóku sér labbitúr niður í hólf til að skoða nánar. Þá kom í ljós að þetta er brún hryssa undan Lilju frá Holti og Vilmundi frá Feti. Það voru því brosandi hjón sem komu til vinnu daginn eftir og sýndu samstarfsfélögunum myndir af nýja gripnum sínum. Hér eru myndir úr gleðigöngunni.
01. apríl 2009
» Nánar
Karl frá TorfunesiFolaldið er fætt 2008 og heitir olinn er mjög stór og sérstaklega framfallegur. Folinn er hreyfingagóður og glaðsinna og er virkilega heillandi. Og ég er ekki einn um þá skoðun. Ég get sagt frá því að í sumar var hryssan í Kýrholti hjá stóðhesti og Gísli og fleiri höfðu orð á því að þarna væri óvenju fallegt folald á ferðinni.Baldvin Baldvinsson í Torfunesi.
26. mars 2009
» Nánar
Stakkavík frá FetiStakkavík í fyrstu verðlaun 4 vetra Undan Vilmundi eru nú skráð 112 afkvæmi. Ellefu þeirra eru á fimmta vetur, eða úr fyrsta árgangi frá því hann var notaður tveggja vetra. Vilmundur var hins vegar ekki notaður á neina hryssu þriggja vetra og þar af leiðandi eru engin trippi til undan honum á fjórða vetur. Ellefu afkvæmi eru til á þriðja vetur, fædd 2006. Síðan koma stórir árgangar 2007 og 2008. Flest afkvæmin úr elsta árgangi hafa verið tamin, eða eru í tamningu. Ein hryssa hefur hlotið fullnaðardóm, Stakkavík frá Feti. Hún er með 8,22 fyrir sköpulag, 7,97 fyrir kosti og 8,07 í aðaleinkunn. Góð byrjun það. Sjá nánar um Stakkavík.
24. mars 2009
» Nánar
AfkvæmiVilmundur ásamt afkvæmum í tamningu Afkvæmi undan úrvals hryssum Vilmundur hefur verið notaður á bestu hryssurnar á Feti. Þar eru í uppvexti og tamningu álitleg trippi. Athygli vekur hve hryssurnar undan honum eru margar léttbyggðar og hálsfallegar. Margar úrvals hryssur frá hinum ýmsu ræktendum hafa einnig verið leiddar undir Vilmund. Má þar nefna Golu frá Höfðabrekku, Tinnu frá Svignaskarði, Sögu frá Litlu-Sandvík, Minnu frá Hvolsvelli, Freistingu og Flugu frá Kirkjubæ, Heklu og Drottningu frá Efri-Rauðalæk, Auði frá Hofi, Flautu frá Dalbæ, Mánadís frá Torfunesi, Auðnu frá Höfða, Golu frá Reykjavík, Brúðu frá Gullberastöðum, Stjörnu frá Kjarri, Væntingu frá Stóra-Hofi, Öðu frá Brautarholti, Ambátt frá Kanastöðum, Fold frá Grindavík, og Snæfríði, Tryggveigu og Úlfhildi frá Kjartansstöðum. Hreinlynd hross Hinn kunni tamningamaður og reiðkennari Anton Níelsson hefur yfirumsjón með tamningum á Feti. „Trippin sem til eru hér á Feti voru frumtamin í fyrra. Ég kynnist þeim hins vegar ekki fyrr en í vetur. Mér líst ljómandi vel á þau. Finnst þau lofa góðu. Þau er viljug og hreingeng með fallegan fótaburð. Þau eru kjarkmikil og viljug, eins og faðirinn, sem er verulega viljugur. Hryssurnar Keflavík og Stakkavík eru léttbyggðar og hálsfallegar og ég hef mjög gaman að þeim. Þetta eru skapmikil og ákveðin hross, en hreinlynd. Jón Vilmundarson í Skeiðháholti á fola á öðrum vetri undan Vilmundi og gæðingamóðurinni Brúðu frá Gullberastöðum. Hann segir um folann: „Hann var ekki glæsilegur sem folald, frekar en mörg önnur folöld undan og útaf Orra frá Þúfu. En hann hefur þroskast vel í vetur og mér líst orðið nokkuð vel á hann. Hann hreyfir sig fallega, mest á flottu brokki en er líklega alhliða hestur. Ég býst við að halda honum gröðum.“ Þorvaldur Sveinsson á Kjartansstöðum: „Ég á eitt afkvæmi undan Vilmundi og mér líst bara nokkuð vel á það. Það lætur ekkert afskaplega mikið yfir sér en ég held að þar sé hestefni á ferðinni. Ég hef líka heyrt af öðrum afkvæmum hans undan hryssum frá mér sem látið er vel af. Mér líst vel á Vilmund sem kynbótahest og geri ráð fyrir að nota hann aftur.“ Elka Guðmundsdóttir á Borg: „Það er einn foli undan Vilmundi í tamningu hjá okkur, geldingur á fimmta vetur. Hann er frá Þórarni Óskarssyni í Þorlákshöfn, undan Perlu frá Enni. Þetta er efnis foli, hágengur og myndarlegur klárhestur. Hann er rétt byrjaður að stíga í tölt og það lítur vel út. Þetta er efni í keppnishest, ég held að það sé enginn vafi á því.“ Öll afkvæmi - Fjöldi: 112 Afkvæmi – Móðir: US2007103536 - Brynjar from Dalalif > M: IS1993285705 - Gola frá Höfðabrekku US2006103422 - Gipar from Grand View Farm > M: IS2001286911 - Gæska frá Feti IS2008288321 - Engilráð frá Syðra-Langholti > M: IS1994275485 - Kolskör frá Tjarnarlandi IS2008287197 - Lukka frá Þorlákshöfn > M: IS1983236011 - Tinna frá Svignaskarði IS2008287192 - Eik frá Hveragerði > M: IS1997287376 - Viðja frá Stóra-Ármóti IS2008287189 - Elfur frá Óseyri > M: IS1995276111 - Sending frá Stóra-Sandfelli 2 IS2008287138 - Salka frá Sunnuhvoli > M: IS1986287599 - Saga frá Litlu-Sandvík IS2008286916 - Herdís frá Feti > M: IS1994286917 - Vonin frá Feti IS2008286915 - Ester frá Feti > M: IS1995288026 - Ösp frá Háholti IS2008286909 - Dögun frá Feti > M: IS1987258001 - Snælda frá Sigríðarstöðum IS2008286194 - Vinna frá Bakkakoti > M: IS1991284980 - Minna frá Hvolsvelli IS2008286101 - Katrín frá Kirkjubæ > M: IS1991286102 - Freisting frá Kirkjubæ IS2008286100 - Þorgerður frá Kirkjubæ > M: IS1985286106 - Fluga frá Kirkjubæ IS2008286075 - Vilma frá Árbakka > M: IS1996287425 - Embla frá Oddgeirshólum IS2008282821 - Nn frá Galtastöðum > M: IS1996258807 - Rjóð frá Borgarhóli IS2008282568 - Fljóð frá Dverghamri > M: IS1989286563 - Ör frá Kálfholti IS2008281966 - Hekla frá Kvistum > M: IS1994284557 - Hrönn frá Þúfu IS2008281387 - Björk frá Litlalandi > M: IS1993281386 - Stjarna frá Litlalandi IS2008265226 - Sparta frá Akureyri > M: IS1995265491 - Hekla frá Efri-Rauðalæk IS2008265088 - Björg frá Syðra-Holti > M: IS2001258596 - Auður frá Hofi IS2008258300 - Vilpa frá Hólum > M: IS2004258301 - Þrift frá Hólum IS2008257591 - Komma frá Ytra-Vallholti > M: IS1997257597 - Gletta frá Ytra-Vallholti IS2008256418 - Vík frá Kagaðarhóli > M: IS1993265645 - Ópera frá Dvergsstöðum IS2008238476 - Þenja frá Spágilsstöðum > M: IS1992238476 - Blika frá Spágilsstöðum IS2008237727 - Súla frá Hrísdal 1 > M: IS2004235070 - Glíma frá Akranesi IS2008235526 - Nn frá Hvanneyri > M: IS1989235509 - Gnótt frá Hvítárbakka 1 IS2008225740 - Fljóð frá Grindavík > M: IS1994225700 - Fold frá Grindavík IS2008201131 - Veröld frá Ólafsbergi > M: IS2001256367 - Sýn frá Húnsstöðum IS2008188046 - Tóbías frá Silfurmýri > M: IS1994258161 - Hrafntinna frá Hólkoti IS2008187654 - Krókus frá Dalbæ > M: IS1994287654 - Flauta frá Dalbæ IS2008186913 - Steinn frá Feti > M: IS1988287547 - Hrund frá Skálmholti IS2008186912 - Sindri frá Feti > M: IS1995286906 - Drífa frá Feti IS2008186909 - Dagur frá Feti > M: IS1990286917 - Litbrá frá Feti IS2008186721 - Nn frá Mykjunesi 2 > M: IS1996287729 - Dögg frá Dalbæ IS2008184177 - Kiljan frá Fornusöndum > M: IS1992257002 - Perla frá Sauðárkróki IS2008184062 - Ögri frá Efri-Rotum > M: IS1996258311 - Frægð frá Hólum IS2008182662 - Dofri frá Dísarstöðum 2 > M: IS1992282660 - Jörp frá Dísarstöðum 2 IS2008180325 - Nn frá Traðarlandi > M: IS1998275485 - Óskadís frá Tjarnarlandi IS2008166211 - Karl frá Torfunesi > M: IS1992266205 - Mánadís frá Torfunesi IS2008136409 - Abraham frá Lundum II > M: IS1995236220 - Auðna frá Höfða IS2008135855 - Edilon frá Giljahlíð > M: IS1998235888 - Fjöður frá Geirshlíð IS2008125297 - Eldberg frá Reykjavík > M: IS1986225300 - Lynja frá Kópavogi IS2008125095 - Kolur frá Morastöðum > M: IS2001265103 - Kolbrá frá Litla-Dal IS2007287833 - Nn frá Hlemmiskeiði 3 > M: IS1995287835 - Drífa frá Hlemmiskeiði 3 IS2007287805 - Nn frá Blesastöðum 1A > M: IS2000287805 - Hrafndís frá Blesastöðum 1A IS2007287684 - Fegurð frá Breiðholti > M: IS1999287621 - Dögg frá Akurgerði IS2007287622 - Vilma frá Akurgerði > M: IS2002287621 - Vaka frá Akurgerði IS2007287529 - Villa frá Vatnsholti > M: IS1998287524 - Gleði frá Vatnsholti IS2007287526 - Vilma frá Vatnsholti > M: IS1993287526 - Sóley frá Vatnsholti IS2007287056 - Nn frá Auðsholtshjáleigu > M: IS1986225212 - Gola frá Reykjavík IS2007286996 - Borg frá Árbæjarhjáleigu 2 > M: IS1993286784 - Bylgja frá Skarði IS2007286669 - Dóttla frá Mykjunesi 2 > M: IS1998286901 - Dóttir frá Feti IS2007286502 - Sóley frá Ásmúla > M: IS1994265301 - Þota frá Skriðu IS2007286501 - Stemma frá Ásmúla > M: IS1992284441 - Brenna frá Litlu-Hildisey IS2007286145 - Hrönn frá Ármóti > M: IS1996225290 - Hekla frá Reykjavík IS2007286144 - Von frá Ármóti > M: IS1997286137 - Nist frá Ármóti IS2007286143 - Syrpa frá Ármóti > M: IS2001286132 - Sæunn frá Ármóti IS2007286142 - Rósa frá Ármóti > M: IS1999286132 - Hrappsey frá Ármóti IS2007286075 - Efling frá Árbakka > M: IS1999284778 - Edda frá Skíðbakka 3 IS2007285047 - Messa frá Hörgslandi II > M: IS1993285041 - Kvika frá Hörgslandi II IS2007282825 - Nóra frá Galtastöðum > M: IS1998288570 - Gæja frá Kjarnholtum I IS2007282341 - Nn frá Kjartansstöðum > M: IS1993287341 - Snæfríður frá Kjartansstöðum IS2007282339 - Náttsól frá Kjartansstöðum > M: IS1995287338 - Tryggveig frá Kjartansstöðum IS2007265062 - Njóla frá Laugasteini > M: IS2000265060 - Léttlynd frá Laugasteini IS2007264490 - Kolka frá Efri-Rauðalæk > M: IS1994265490 - Drottning frá Efri-Rauðalæk IS2007258325 - Ylfa frá Nátthaga > M: IS1998287337 - Úlfhildur frá Kjartansstöðum IS2007255571 - Glæða frá Bessastöðum > M: IS1994285425 - Glóð frá Jórvík 2 IS2007237638 - Brigða frá Brautarholti > M: IS1994284263 - Ambátt frá Kanastöðum IS2007225298 - Skál frá Kópavogi > M: IS1983225310 - Fluga frá Kópavogi IS2007225109 - Kóróna frá Dallandi > M: IS1998286107 - Katarína frá Kirkjubæ IS2007188348 - Stormur frá Efra-Langholti > M: IS1994225197 - Salka frá Reykjum IS2007187900 - Úlfhéðinn frá Skeiðháholti > M: IS1986235707 - Brúða frá Gullberastöðum IS2007187805 - Nn frá Blesastöðum 1A > M: IS1996288046 - Perla frá Haga IS2007187461 - Spuni frá Kambi > M: IS1991287611 - Stjörnu-Glóð frá Nýjabæ IS2007187001 - Krummi frá Kjarri > M: IS1998287003 - Stjarna frá Kjarri IS2007186932 - Valur frá Árbæ > M: IS1992286003 - Vænting frá Stóra-Hofi IS2007186925 - Kaldi frá Feti > M: IS1994286928 - Álsey frá Feti IS2007186921 - Nafni frá Feti > M: IS1995288026 - Ösp frá Háholti IS2007185060 - Brynjar frá Fossi 2 > M: IS1992285057 - Gletta frá Fossi 2 IS2007184700 - Snillingur frá Sperðli > M: IS1987256436 - Stikla frá Húnavöllum IS2007182310 - Vigri frá Hamarsey > M: IS2001286932 - Hrund frá Árbæ IS2007181586 - Brynjólfur frá Stöng > M: IS1999255475 - Hrafntinna frá Þóreyjarnúpi IS2007181220 - Kjarkur frá Melbakka > M: IS1995284443 - Saga frá Litlu-Hildisey IS2007177158 - Glæsir frá Lækjarbrekku 2 > M: IS1998286915 - Gullveig frá Feti IS2007158859 - Brynjar frá Sólheimagerði > M: IS1991257897 - Mánadís frá Tunguhálsi II IS2007156452 - Sveinn-Skorri frá Blönduósi > M: IS1992256396 - Birta frá Sauðanesi IS2007155571 - Sjóður frá Bessastöðum > M: IS1995265661 - Milla frá Árgerði IS2007138399 - Nn frá Gillastöðum > M: IS1987238400 - Þóra frá Gillastöðum IS2007138377 - Werner frá Vatni > M: IS1992238377 - Tekla frá Vatni IS2007137636 - Ámundi frá Brautarholti > M: IS1999237637 - Aða frá Brautarholti IS2007135919 - Brúnó frá Steindórsstöðum > M: IS1993235919 - Játning frá Steindórsstöðum IS2006280337 - Dögg frá Miðey > M: IS1990284527 - Gletta frá Miðey IS2006225463 - Brynja frá Grindavík > M: IS1988285505 - Mósa frá Vík í Mýrdal IS2006225271 - Júlía frá Reykjavík > M: IS1992265770 - Þerna frá Stóra-Dal IS2006186916 - Fagri-Blakkur frá Feti > M: IS1997286919 - Flóra frá Feti IS2006186906 - Finnur frá Feti > M: IS1991286916 - Fold frá Feti IS2006186905 - Valbjörn frá Feti > M: IS1988287547 - Hrund frá Skálmholti IS2006186904 - Loki frá Feti > M: IS1987258007 - Ísafold frá Sigríðarstöðum IS2006186903 - Mósart frá Feti > M: IS1987258001 - Snælda frá Sigríðarstöðum IS2006186764 - Villi frá Skarði > M: IS1989287531 - Skuggsjá frá Krækishólum IS2006125222 - Brynjar frá Reykjavík > M: IS1995277462 - Blesa frá Viðborðsseli 1 IS2004286960 - Stakkavík frá Feti > M: IS1994225700 - Fold frá Grindavík IS2004286913 - Keflavík frá Feti > M: IS1990286917 - Litbrá frá Feti IS2004286912 - Bergvík frá Feti > M: IS1988287547 - Hrund frá Skálmholti IS2004188406 - Prati frá Kjarnholtum II > M: IS1994288406 - Fluga frá Kjarnholtum II IS2004187401 - Frakkur frá Langholti > M: IS1990265598 - Spá frá Akureyri IS2004187197 - Svali frá Þorlákshöfn > M: IS1989258459 - Perla frá Enni IS2004186918 - Þorbjörn frá Feti > M: IS1996225708 - Blíða frá Grindavík IS2004186904 - Nn frá Feti > M: IS1994286922 - Hugljúf frá Feti IS2004138711 - Stefán frá Hvítadal > M: IS1987284022 - Kúnst frá Steinum DK2004206347 - Blessun fra Ny Nørregård > M: IS1990287318 - Agnes frá Litlu-Reykjum DE2004210274 - Brynja vom Bienwald > M: IS2001282806 - Rós frá Vestur-Meðalholtum
24. mars 2009
» Nánar
Afkvæmi Vigdísar með sem hlotið hafa kynbótadóm:IS2004286936 - Verona frá Árbæ F: Aron frá StrandarhöfðiSköpulag 8.42 Kostir 7.68 Aðaleinkunn 7.97 IS2003286911 - Stjörnudís frá Feti F: Töfri frá Kjartansstöðum Sköpulag 8.14 Kostir 7.79 Aðaleinkunn 7.93 IS2002186936 - Vörður frá Árbæ F: Hróður frá Refsstöðum Sköpulag 8.32 Kostir 8.08 Aðaleinkunn 8.18 IS2001186915 - Vilmundur frá Feti F: Orri frá Þúfu Sköpulag 7.96 Kostir 8.95 Aðaleinkunn 8.56 IS2000186939 - Vigri frá Árbæ F: Orri frá Þúfu Sköpulag 8.46 Kostir 8.05 Aðaleinkunn 8.22 IS1999286914 - Arndís frá Feti F: Orri frá Þúfu Sköpulag 8.31 Kostir 8.15 Aðaleinkunn 8.21 IS1997186925 - Fontur frá Feti F: Roði frá Múla Sköpulag 7.85 Kostir 8.42 Aðaleinkunn 8.19
24. mars 2009
» Nánar
Þórður Þorgeirsson um Vilmund„Vilmundur er einn af fimm bestu stóðhestum sem ég hef komið á bak á. Þetta mikla rými á öllum gangtegundum er óvenjulegt. Hans sterkasta hlið er þó lundernið; mikill vilji og kjarkur. Ég kom á bak á Vigdísi á sínum tíma. Það er gegnheill gæðingur. Gangtegundirnar svo jafnar og góðar. Mikil dugnaðar- og viljahryssa.“
24. mars 2009
» Nánar
Ævar Örn Guðjónsson um VilmundÆvar Örn Guðjónsson var tamningamaður á Feti um nokkurra ára skeið. Hann fylgdist með Vilmundi í uppvexti og frumtamdi hann.„Vilmundur var fallegur og myndarlegur foli á fyrsta og öðrum vetri. Hann fór síðan í fóðurtilraun upp að Gunnarsholti þriggja vetra og kom þaðan alveg rosalega feitur og að mér fannst aflagaður. Ég held að það hafi spillt fyrir honum hvað útlitið varðar. Hann var lengi að komast í eðlilegt form. Ég byrjaði á honum um haustið og það gekk prýðilega, þægur og auðveldur foli í alla staði. Ég hélt síðan áfram með hann eftir áramótin og ég held ég megi segi að Vilmundur hafi verið frábær í tamningu. Hann var svo meðfærilegur og viljugur. Ég fann að það var mjög auðvelt að brýna hann og herða ef maður vildi, en ég tamdi hann gætilega, taldi það farsælast.
24. mars 2009
» Nánar
Erlingur Erlingsson um VigdísiVigdís er gæðingur. Það sem einkennir hrossin út af Ásdísi er þessi mikli kjarkur og áræði. Þau eru stolt og skapstór. Það þarf að vanda til tamningarinnar í byrjun, en síðan vinnur allt með manni. Vigdís var með einstaklega góðar gangtegundir, alveg tilbúnar frá náttúrunnar hendi. Hún var stór og krangaleg á fjórða vetur og í raun ekki hægt að leggja mikið á hana í tamningu. En hún stóð samt sem áður efst í fjögra vetra flokki á FM1996 á Hellu. Ég hafði ekkert prófað skeiðið fyrir sýningu, en það var alveg klárt þegar leitað var eftir því. Eftir það fataðist henni aldrei sprettur ef hún á annað borð fór niður. Sem var ekki alltaf, vegna þess að stökkið var svo hátt og kraftmikið. Maður varð að fara gætilega af stað.Ég hef ekkert kynnst Vilmundi af eigin raun. Mér sýnist hann líkur móður sinni hvað viljann og gangtegundirnar snertir. Ég hef séð nokkur trippi undan honum og líst vel á þau. Hryssurnar undan honum líkjast Vigdísi móður hans. Háfættar og hálsfallegar. Við eigum einn fola á fimmta vetur undan honum. Hann heitir Frakkur frá Langholti. Hann er fallegasta afkvæmi móður sinnar. Verulega flottur foli á tölti og brokki, og skeiðið virðist opið. Hann verður sýndur í vor.“
24. mars 2009
» Nánar
Ætt VilmundarVilmundur er undan hinum mikla kynbótahesti Orra frá Þúfu. Móðir Vilmundar er gæðingurinn og stólpagripurinn Vigdís frá Feti, sem er undan heiðursverðlauna stóðhestinum Kraflari frá Miðsitju og Ásdísi frá Neðra-Ási. Ættir og sögu Orra frá Þúfu og Kraflars frá Miðsitju þekkja flestir og ekki ástæða til að fara nánar út í þá sálma hér. Við skulum hins vegar líta betur á móðurættina, uppvöxt og tamningu.Brynjar Vilmundarson keypti Ásdísi óséð trippi á fjalli í Skagafirði. Þegar hún kom til byggða var hún meidd á fæti og var aldrei tamin. Hún hefur samt sem áður skipað sér í röð bestu ræktunarhryssna landsins. Hún er gæðingamóðir. Vigdís stóð efst í elsta flokki hryssna á LM1998 á Melgerðismelum, setin af Erlingi Erlingssyni. Hún er úrval að gerð og kostum. Er með 8,13 fyrir sköpulag, þar af 9,0 fyrir háls og herðar. Gangtegundirnar hreinar og öflugar, gangskil góð. Vilji og fegurð í reið upp á 9,0. Meðaleinkunn hæfileika 8,59, aðaleinkunn 8,36.
24. mars 2009
» Nánar
Gaf honum nafn föður sínsRæktandi Vilmundar er Brynjar Vilmundarson, áður hrossabóndi á Feti. Um leið og Brynjar sá folaldið nýfætt var hann ekki í nokkrum vafa um að þar færi stóðhestsefni. Hann var svo viss í sinni sök að hann skýrði folaldið í höfuðið á föður sínum. Í viðtali í Stóðhestablaði Eiðfaxa 2008 segir hann meðal annars:„Hvað Vilmund varðar — ef ég á að vera sjálfhælinn, sem ég er nú stundum — þá hefur það af og til gerst að ég segi um nýfætt folald: Þetta verður gæðingur, við setjum það á. Og það hefur alltaf ræst. Ég var alveg viss þegar ég sá Vilmund nýfæddan. Þá ákvað ég að gefa honum nafn föður míns. Ég er ekki mikið fyrir að ávarpa kynbótadómara. En þegar Vilmundur fór í dóm fór ég í skúrinn og sagði við þá að þeir skyldu vita það að ég henti ekki föðurnafni mínu á einhverja helvítis truntu.“
24. mars 2009
» Nánar
Brynja frá BienwaldBrynja frá Bienwald er úr fyrsta árangi undan Vilmundi frá Feti. Hún er nokkuð skyldleikaræktuð, undan Rós frá Vestur-Meðalholtum, sem er undan Þristi frá Feti, Orrasyni. Í móðurætt Rósar er heldur ekki ýkja langt í Adam frá Meðalfelli, sem er afi Orra. Það má því segja að Adam eigi stóran skerf í þessu efnilega trippi. Brynja hafði verið tamin í sex vikur þegar þessar myndir voru teknar. Eigandinn, Michael Baron, er afar ánægður með Brynju og segir hana hafa verið mjög auðvelda í tamningu. Lundin sé afbragð. Hún sé mjög samvinnufús. Brokkið er rúmt, töltið strax laust upp að milliferð. Stökkið er öruggt og kraftmikið. Skeiðið opið.
24. mars 2009
» Nánar
Vilmundur frá FetiVilmundur frá Feti sló í gegn á LM2006 á Vindheimamelum. Þá setinn af Þórði Þorgeirssyni. Framganga þessa unga hests þótti afar þróttmikil. Það fór kliður um brekkuna þegar hann var sýndur í forsýningu. Klárgangurinn úrval, 9,0 fyrir tölt og brokk. Skeiðið og stökkið líka gott, 8,5. Vilji og fas eins og best gerist, 9,0 fyrir fegurð í reið og 9,5 fyrir vilja og geðslag. Aðaleinkunn fyrir hæfileika 8,95.
09. janúar 2009
» Nánar
Anton Páll Níelsson
|
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landsmót | Gréta | 8,32 | 4 | 5 V |
| Landsmót | Skjaldbreið | 8,34 | 7 | 6 V |
| Landsmót | Kapítóla | 8,39 | 5 | 7V |
| Landið | Gréta | 8,32 | 7 | 5 V |
| Landið | Brá | 8,28 | 10 | 5 V |
| Landið | Skjaldbreið | 8,36 | 8 | 6 V |
| Landið | Kapítóla | 8,46 | 7 | 7 V |
| íslandsmót fimmgangur | Lúðvík | 2 | ||
| íslandsmót tölt | Jónína | 7 |
2007
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Heimsmeistaramót | Finna | 8,2 | 1 | 5 V |
| Landið | Finna | 5,52 | 1 | 5 V |
| Landið | Jónína | 8,36 | 4 | 5 V |
| Landið | Skjaldbreið | 8,27 | 10 | 5 V |
2006
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landsmót | Jónína | 8,17 | 5 | 4 V |
| Landsnót | Vilmundur | 8,56 | 1 | 5 V |
| Landið | Jónína | 8,18 | 7 | 4 V |
| Landið | Vilmundur | 8,56 | 1 | 5 V |
| Landið | Mars | 8,43 | 9 | 5 V |
2005
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landið | Vilmundur | 8,21 | 8 | 4 V |
| landið | Gæska | 8,28 | 1 | 4 V |
| Landið | Mars | 8,39 | 3 | 5 V |
2004
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landsbót | Álaborg | 8,25 | 3 | 4 V |
| Landið | Álaborg | 8,25 | 4 | 4 V |
2003
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landið | Árni Geir | 8,2 | 1 | 4 V |
| landið | Gullveig | 8,29 | 8 | 5 V |
2002
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landsmót | Þristur | 8,19 | 4 | 4 V |
| Landsmót | Karitas | 8 | 9 | 4 V |
| Landsmót | Fontur | 8,19 | 8 | 5 V |
| Landsmót | Forsíða | 8,19 | 6 | 5 V |
| Landið | Þristur | 8,19 | 4 | 4 V |
| Landið | Forsíða | 8,19 | 10 | 5 V |
2001
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landið | Fontur | 8,01 | 5 | 4 V |
| Landið | Forsíða | 8 | 5 | 4 V |
| Landið | Vindhetta | 7,87 | 9 | 4 V |
| Landið | Ösp (Háholti) | 8,39 | 1 | 6 V |
| Landið | Hlín | 8,39 | 1 | 6 V |
Hlín varð heimsmeistari 6 vetra hryssa þetta ár
2000
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landsmót | Bára | 7,99 | 7 | 4 V |
| Landsmót | Ösp (Háholt) | 8,32 | 3 | 5 V |
| Landsmót | Hlín | 8,26 | 5 | 4 V |
| Landsmót | Bringa | 8,56 | 1 | 6 V |
| Landið | Framtíð | 8,1 | 4 | 4 V |
| Landið | Fantasía | 8,05 | 6 | 4 V |
| Landið | Hlín | 8,36 | 3 | 5 V |
| Landið | Bringa | 8,66 | 1 | 6 V |
1999
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landið | Hlín | 8,07 | 3 | 4 V |
| Landið | Kynning | 8,04 | 5 | 4 V |
| Landið | Bringa | 8,37 | 1 | 5 V |
| Landið | Vonin | 8,06 | 9 | 4 V |
1998
| Viðburður | Nafn | Dómur | Árangur | Flokkur |
| Landsmót | Álsey | 7,97 | 4 | 4 V |
| Landsmót | Vigdís | 8,36 | 1 | 6 V |
| Landsmot | Lokkadís | 8,33 | 2 | 6 V |
| Landið | Bringa | 8,11 | 1 | 4 V |
| Landið | Álsey | 7,97 | 5 | 4 V |
| Landið | Vigdís | 8,36 | 1 | 6 V |
| Landið | Lokkadís | 8,33 | 2 | 6 V |
Um Fet
Brynjar Vilmundarsonar er upphafsmaður ræktunarbúsins Fets. Ræktunarstarf hans má rekja aftur til ársins 1984 er hann eignaðist hestfolaldið Merkúr frá Miðsitju sem kveikti ræktunaráhuga hans. Merkúr þessi var síðar seldur til Danmerkur og enn eru dætur Merkúrs hluti af ræktun Fets. Brynjar hefur lagt út í gríðarlega uppbyggingu á Feti og hafa öll beitarhólf verið ræst og girt af mestu fagmennsku, aðgangur er að rennandi vatni alls staðar og hægt að aka um öll hólf, bæði til eftirlits og smölunar.
Hrossaræktarbúið á Feti er þátttakandi í gæðavottunarkerfi Landgræðslunnar og öll hross eru frost- og örmerkt og skráð í gagnagrunninn Worldfeng.
Snemma árs 2007 eignaðist Karl Wernersson og fjölskylda Fet. Að auki eignaðist fjölskyldan næstu jörð við, Efri-Rauðalæk, Sú jörð býr yfir góðum landkosti, bæði til beitar og ræktunar. Mikið hefur verið lagt í uppbyggingu aðstöðunnar á þessu ári, m.a. er búið að girða allar lendur að nýju og nú með þarfir Hrossaræktunar að leiðarljósi. Þrjú hesthús eru á staðnum, rúmgóð reiðskemma ásamt tveimur minni reiðskemmum sem nýtast fyrst og fremst til for- og frumtamninga. Starfsfólki hefur einnig verið búinn ágætur húsakostur.
Fetsræktunin sækir töluvert í Sauðárkrókslínuna og má þakka hann ýmsum sem á undan hafa gengið þann góða árangur sem er að nást hjá okkur. Nokkrar aðkeyptar hryssur í upphafi ræktunarstarfsins hafa reynst gríðarlega vel. Til dæmis Ásdís frá Neðra-Ási, Ísafold frá Sigríðarstöðum og Hrund frá Skálmholti svo einhverjar séu nefndar.
Fetsbúið á hluti í Orra frá Þúfu og hefur Orri reynst afskaplega farsæll í ræktuninni á Feti og skilað mörgum gæðingnum. Meðal annars er hæst dæmda dóttir Orra í heiminum í dag frá Feti, en það er stólpahryssan Bringa sem hlaut á sínum tíma 8.13 fyrir sköpulag og 9.01 fyrir hæfileika, eða 8.66 í aðaleinkun.
Í dag fæðast um 45-50 folöld á ári á Feti og fjöldi hrossa kemur til dóms ár hvert. Mikil áhersla er lögð á að sýna hrossin ung og eru langflest hrossin sem sýnd eru frá Feti 4 og 5 vetra. Frá því að starfsemi hófst á Feti hafa verið þar fastráðnir tamningamenn og í dag starfa allt að 4 tamningamenn við búið að staðaldri.
Fjöldi þekktra keppnis- og kynbótahrossa frá Feti kemur fram árlega og búið hefur eitt hrossaræktarbúa á Íslandi verið tilnefnt þrettán sinnum til titilsins “Ræktunarbú ársins.” Fet hefur þrisvar hlotið þann titil, árin 1998 og 2004 og 2007.
Hross frá Feti hafa verið flutt út um allan heim og má finna allar upplýsingar um afdrif, ættir og uppruna þeirra í gagnagrunni Bændasamtakanna www.worldfengur.com.
Fet er staðsett við þjóðveg 1 rétt við Rauðalæk áður en komið er að Hellu á Suðurlandi.
|








